Helga Sigrún Harðardóttir þingmaður hefur ákveðið að sækjast eftir því að leiða lista Framsóknarflokksins í SV kjördæmi í komandi alþingiskosningum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helgu Sigrúnu en hún segir þá ákvörðun byggjast á eindreginni áskorun grasrótar framsóknarmanna, kalli hennar eftir nýliðun og breytingum á forystu flokksins og hún sé jafnframt í samræmi við þær miklu breytingar sem orðið hafa um land allt og einkenna lista framsóknarmanna fyrir komandi alþingiskosningar.

„Ég vil bjóða fram krafta mína til að auka lýðræði, vinna að meiri jöfnuði og ekki síst sanngjarnari leikreglum,“ segir Helga Sigrún í tilkynningunni.

„Með þau gildi að leiðarljósi vil ég leggja mitt af mörkum við endurreisn samfélagsins. Stjórnlagaþing, þar sem stórum spurningum um uppbyggingu stjórnkerfisins er vísað til þjóðarinnar sjálfrar, er grundvallaratriði til að hér náist sátt um þær leikreglur.“

Þá segir hún íslenskt hagkerfi vera miðstýrðara en víðast hvar í vestrænum heimi og bein afskipti stjórnmálaflokka af viðskipta- og atvinnulífi séu óvíða meiri.

„Hverfa þarf af þeirri braut. Ég vil vinna að því að hér þrífist öflugt atvinnulíf, heilbrigð þjóð og kröftugt velferðarkerfi,“ segir Helga Sigrún.

„Verkefnin sem framundan eru verða ærin og þau verða örugglega erfið. Með samstilltu átaki og samvinnu eigum við þó fjölmörg tækifæri en úr þeim þarf að spila með sanngjörnum hætti. Ég vil bretta upp ermar í því mikla verkefni sem framundan er með framsóknarmönnum og öðrum þeim sem vilja vinna með flokknum að sama markmiði og minni á, að þingflokkur framsóknarmanna hefur nú þegar lagt fram heildstæðar lausnir á efnahagsvanda þjóðarinnar sem innlegg í stuðning við minnihlutastjórn þá sem nú situr á Alþingi.“

Helga Sigrún er 39 ára, kennari og náms- og starfsráðgjafi að mennt, með mastersgráðu í mannauðs- og samskiptastjórnun frá Oklahoma University. Þá hóf hún laganám við Háskólann í Reykjavík s.l. haust.

Hún er gift Gunnlaugi Kristjánssyni forstjóra Björgunar. Til samans eiga þau tvö uppkomin börn og tvö barnabörn.

Hún starfaði lengst af sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi, við kennslu og ráðgjöf og sem verkefnastjóri, m.a. hjá Impru-nýsköpunarmiðstöð á Iðntæknistofnun (nú Nýsköpunarmiðstöð). Þar vann hún við handleiðslu frumkvöðla og verkefnastjórn Brautargengis þar sem hópar kvenna komu saman á 15 vikna námskeiðum til að skrifa viðskiptaáætlun utan um viðskiptahugmyndir sínar og fá leiðsögn um stofnun og rekstur fyrirtækja.

Haustið 2005 tók hún svo að sér starf skrifstofustjóra þingflokks framsóknarmanna. Hún hafði gegnt því starfi í rúm 3 ár þegar hún óvænt varð þingmaður í nóvember s.l. Jafnframt hefur hún setið í stjórnum fyrirtækja í opinberri eigu s.s. Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Fríhöfninni ehf.