Helga Þórólfsdóttir hefur hafið störf sem ráðgjafi við sáttamiðlun hjá sálfræði- og ráðgjafarfyrirtækinu Lífi og sál, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Helga hafði á árunum 2015-2019 yfirumsjón með ráðgjöf um samvinnu innan Rauða krossins. Fyrst í Írak og Íran en síðar með áherslu á Evrópu og mið-Asíu með aðsetur í Búdapest.

Árin 2010-2015 kenndi Helga við Háskóla Íslands (HÍ), Háskólann á Bifröst og við Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Á árunum 2009-2013 vann hún fyrir utanríkisráðuneytið sem ráðgjafi við stefnumótun í jafnréttismálum og fyrir NATO sem ráðgjafi um góða stjórnarhætti auk þess sem hún var skipuð þróunar- og jafnréttisfulltrúi í Afganistan. Helga var yfirmaður alþjóðastarfs Rauða krossins frá 2001 – 2008.  Hún var stjórnandi hjálparstarfs Rauða krossins á vettvangi átaka og náttúruhamfara á árunum 1993-2000 í Sómalíu, Líberíu, Georgíu, Tajikistan, Bosníu, Úganda og Indlandi. Auk þess hefur Helga unnið hjá Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ.

Helga er í doktorsnámi í mannfræði við HÍ. Hún lauk tveimur meistaraprófum við Bradford háskóla í Englandi árið 2004, í friðarfræðum og í lausn ágreiningsmála. Árið 1981 útskrifaðist hún með lokapróf í félagsráðgjöf frá háskólanum í Lundi.