Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og leikkona, mun leiða lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi Alþingiskosningum. Þá mun Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og varaformaður Samfylkingarinnar, leiða lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður. Framboðslistar flokksins voru samþykktir á fundi á Reykjavík Natura í dag. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Sam­fylk­ing­unni.

Í 2. sæti á eftir Helgu Völu situr Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar. Á eftir Ágústi Ólafi kemur Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri við Háskólann í Reykjavík.