Helga Valfells hefur verið ráðin aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu en Helga hóf störf í gær, 16. febrúar.

Helga er fædd árið 1964. Hún er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, BA í bókmenntum og hagfræði frá Harvard University og MBA frá London Business School. Helga hefur m.a. unnið fyrir Merrill Lynch, Útflutningsráð og fyrir eigið ráðgjafafyrirtæki.