Helgi Bjarnason hefur verið ráðinn forstjóri VÍS að því er kemur fram í tilkynningu félagsins. Helgi hefur gengt stöðu framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka frá október 2011 og var áður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka.

Helgi er með masters gráðu í tryggingastærðfræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn og BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands.

Áður en Helgi hóf störf hjá Arion banka var hann aðstoðarframkvæmdastjóri Sjóvá Almennra auk þess sem hann gengi stöðu framkmvæmdastjóra Sjóvar. Fyrir það starfaði hann sem tryggingastæðfræðingur hjá Alþjóða líftryggingarfélaginu. Helgi hefur jafnframt gegnt stjórnarsetu í ýmsum félögum, m.a. í stjórnum Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fjármálafyrirtækja og Félags íslenskra tryggingarstærðfræðinga. Helgi hefur gegnt stjórnarformennsku í Verði tryggingum hf. og Verði líftryggingum hf.

Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, stjórnarformaður VÍS segir við tilefnið: „Það er mikill fengur fyrir VÍS að fá Helga til starfa en hann býr yfir yfirgripsmikilli og djúpri þekkingu og reynslu af jafnt tryggingamarkaði sem og fjármálamarkaði. Í starfi sínu hjá Arion banka hefur hann m.a. tekið þátt í þróun nýrra stafrænna lausna en VÍS hefur í nýrri stefnumótun lagt aukna áherslu á framfarir á því sviði. Stjórn VÍS er sannfærð um að undir hans stjórn muni félagið halda áfram að sækja fram sem leiðandi tryggingafélag á Íslandi. “

Helgi Bjarnason bætir við: „Það er einstaklega spennandi verkefni að taka við stjórn VÍS í dag en rekstur tryggingafélaga hefur verið að breytast hratt á undanförnum árum, meðal annars með hraðri þróun upplýsingatækni og nánari tengingum við fjármálamarkaði. VÍS, sem stærsta og öflugasta tryggingafélag landsins, er vel í stakk búið að laga sig að  slíkum breytingum. Þannig tryggjum við farsælan rekstur til framtíðar á sama tíma og við höldum á lofti því sem ávallt hefur verið leiðarljós félagsins að tryggingar snúist um fólk. Ég hlakka til að vinna með öflugum hópi starfsfólks að áframhaldandi þróun og útvíkkun þeirrar þjónustu sem VÍS veitir þeim tugþúsundum Íslendinga sem eru í viðskiptavinahópi félagsins.“