Helgi Hrafn Gunnarsson, segir frekari stjórnmálaþátttöku sína koma í ljós þegar nær dregur þingkosningum en „Að óbreyttu þá hyggst ég bjóða mig fram næst, en ég ætla ekki að lofa því.“

Segir hann að kannski verði annað fólk í framboði sem hann muni frekar vilja styðja og að fullt af frábæru fólki sé innan Pírata að því er Kjarninn greinir frá.