Helgi Vilhjálmsson, kenndur við Góu, hefur fest kaup á veitingastaðnum Pizza Hut í Smáralind. Fréttanetið greinir frá þessu.

Í viðtali við Fréttanetið segir Helgi að hann hyggist opna fleiri Pizza Hut staði á landinu. „Akkúrat eins og maður opnaði einn Kentucky stað einu sinni og þeir eru orðnir átta talsins í dag,“ segir hann, en hann á jafnframt skyndibitakeðjuna KFC á Íslandi.

Aðspurður hvort boðið verði upp á Pizza Hut á veitingastöðum KFC og Taco Bell segist hann ekki reikna með því en þetta muni skýrast betur síðar þar sem hann sé aðeins nýbúinn að ganga frá kaupunum.