Helgi Magnússon endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins á aðalfundi í dag. Í stjórnina voru endurkjörnir þeir Tómas Már Sigurðsson og Andri Þór Guðmundsson.
Ný inn í stjórnina koma Guðrún Hafsteinsdóttir og Kolbeinn Kolbeinsson en úr stjórninni ganga Aðalheiður Héðinsdóttir og Loftur Árnason eftir sex ára starf. Fyrir í stjórn samtakanna eru Bolli Árnason, Sigsteinn P. Grétarsson og Vilborg Einarsdóttir.
Kosningabarátta
Alls gáfu sex kost á sér í kosningu til stjórnar og ráðgjafaráðs. Þessi fjögur hlutu flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:
- Andri Þór Guðmundsson, Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
- Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís ehf.
- Kolbeinn Kolbeinsson, Ístak hf
- Tómas Már Sigurðsson, Alcoa Fjarðaál
Fyrir í stjórn Samtakanna eru:
- Bolli Árnason, GT tækni ehf.
- Sigsteinn P. Grétarsson, Marel hf.
- Vilborg Einarsdóttir, Mentor ehf.
Þessir tveir komu næst að atkvæðatölu og eru kjörnir til setu í ráðgjafaráði Samtaka iðnaðarins til eins árs og eru jafnframt varamenn í stjórn Samtakanna.
- Halldór Einarsson, Henson ehf.
- Hilmar Veigar Pétursson, CCP hf