Eignarhaldsfélag Hörpu hefur keypt í Marel fyrir um 32 milljónir króna, samkvæmt flöggun hjá Kauphöllinni.

Helgi Magnússon, formaður Samtaka Iðnaðarins, er stjórnarformaður eignarhaldsfélag félagsins og meirihlutaeigandi þess.

Meðalgengi kaupanna var 80,875. Eftirtaldir hlutir voru keyptir í dag. 100.000 hlutir á genginu 80, 100.000 á genginu 80,5 og 200.000 hlutir á genginu 81,5.