Tvö félög tengd Helga Magnússyni, fjárfestis og stjórnarmanni í Marel, seldu í dag samtals 600.000 hluti í Marel. Varðberg ehf. sem er í hans eigu seldi 200.000 hluti og Eignarhaldsfélag Hörpu ehf. sem Helgi á stóran hlut í, seldi 400.000 hluti.

Bæði viðskiptin fóru fram á genginu 136 sem þýðir að söluandvirðið nam 81,6 milljónum króna.

Eignarhlutur aðila, sem fjárhagslega eru tengdir Helga, er samtals 4.505.044 krónur að nafnvirði, eða 612,7 milljónir að markaðsvirði miðað við gengi viðskiptanna í dag.