Icelandair mun bæta við sig 30 manns á sölu- og markaðssviði á næsta ári að sögn Helga Más Björgvinssonar, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Icelandair. Hann segir næsta ár líta vel út en félagið mun bæta þremur flugvélum við reksturinn.

VB Sjónvarp ræddi við Helga.