Helgi Bergs tekur við stöðu framkvæmdastjóra Fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings banka á samstæðugrundvelli af Ármanni Þorvaldssyni. Helgi starfaði áður sem aðstoðarframkvæmdastjóri Fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings banka á samstæðugrundvelli. Helgi er auk þess framkvæmdastjóri Kaupthing Limited, dótturfélags Kaupþings banka í Lundúnum, og mun hann gegna þeirri stöðu áfram.

Helgi hóf störf í Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings árið 1997 og varð aðstoðarframkvæmdastjóri Fyrirtækjaráðgjafar á samstæðugrundvelli árið 2001. Helgi hefur verið búsettur í Lundúnum frá árinu 2003, þegar hann varð framkvæmdastjóri Kaupthing Limited.