Hlutfall nemenda við framhaldsskóla sem útskrifast fjórum eftir nám er að jafnaði 60%, en hjá innflytjendum sem flytja til landsins eftir 7 ára aldur er hlutfallið helmingi lægra eða 32%. Brautskráningarhlutfall hefur farið hækkandi frá árinu 2003, það var 44,2% fjórum árum seinna, en 60% eins og áður segir í fyrra fyrir þá sem hófu nám fjórum árum fyrr.

Brautskráningarhlutfallið hefur ekki mælst hærra í tölum Hagstofu Íslands en nú, en þær byggja á þeim sem höfðu útskrifast á síðasta ári eftir að hafa hafið nám haustið 2015. Hlutfallið tók stökk frá árinu 2018, þegar það var 55,6% enda útskrifuðust þá stórir hópar með stúdentspróf í kjölfar styttingar framhaldsskólans með bæði þriggja og fjögurra ára nám að baki.

Hlutfall fyrstu og annarra kynslóðar innflytjenda sem komu til landsins fyrir 7 ára aldur og hafa útskrifast innan fjöggurra ára er þó svipað og Íslendinga allra, eða 57,8% meðal fyrstu kynslóðar og 50% meðal annarra kynslóðar innflytjenda. Af þeim Íslendingum sem ekki teljast til innflytjenda höfðu 62,1% brautskráðst innan fjögurra ára.

Staðan er svo þveröfug fyrir starfsnám, en þar var brautskráningarhlutfall innflytjenda hærra en heildarmeðaltalið, þó munurinn væri minni. Þannig höfðu 40,3% allra þeirra sem skráðu sig í starfsnám haustið 2015 útskrifast fjórum árum seinna, en á meðal innflytjenda sem fluttu til landsins fyrir sjö ára aldur var hlutfallið 44% en 43% meðal þeirra sem fluttu eftir það.

Nærri þrír fjórðu Íslendinga fæddir erlendis útskrifuðust

Þegar bæði fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur eru teknir saman er hlutfall þeirra sem höfðu útskrifast fjórum árum eftir að hófu nám í dagsskóla haustið 2015 komið í 36%, sem er hæsta brautskráningarhlutfall þessa hóps á þessari öld.

Alls voru innflytjendur sem hófu nám haustið 2015 320, en eingöngu 44 tilheyrðu annarri kynslóð innflytjenda og 45 voru innflytjendur sem fluttust til landsins fyrir sjö ára aldur. Á móti kemur að hæsta brautskráningarhlutfallið er meðal nýnema fæddir erlendis en með íslenskan bakgrunn eða 73,9% þeirra höfðu útskrifast haustið 2019 af þeim sem hófu nám haustið 2015.

Alls höfðu 62,4% þeirra sem hafa engan erlendan bakgrunn útskrifast og rúm 55% þeirra sem eru fæddir á Íslandi en eiga erlent foreldri. Konur eru líklegri en karlar til að útskrifast úr námi óháð bakgrunni. Alls höfðu 68,3% allra kvenna útskrifast innan fjögurra ára og 51,4% karla.  Jafnframt er úskriftarhlutfallið hærra í skólum á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni.

Af þeim 4.359 nýnemum sem hófu nám á framhaldsskólastigi árið 2014 höfðu 60% útskrifast árið 2019, en 23% höfðu hætt námi eða tekið hlé en 175 voru enn í námi án þess að hafa útskrifast. Hlutfall þeirra síðastnefndu, það er enn í námi fjórum árum eftir upphaf náms hefur farið lækkandi, en þeir voru tæplega 28% nemenda árin 2004 og 2005, en 17% nú.