Farice, sem rekur sæstrengi milli Íslands og Evrópu, skilaði tapi upp á 3,85 milljónir evra á síðasta ári, en fjárhæðin samsvarar um 580 milljónum íslenskra króna. Er það nokkru betri niðurstaða en ári fyrr þegar félagið skilaði tapi upp á 7,2 milljónir evra. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins .

Rekstarhagnaður fyrir fjármagnsliði varð af starfsemi fyrirtækisins í fyrsta sinn frá árinu 2007 og nam hann 260 þúsund evrum samanborið við 910 þúsund evra tap árið 2013. EBITDA var 7,6 milljónir evra miðað við 6,7 milljónir árið 2013. Fjármagnskostnaður var 4,1 milljón evra. Heildartekjur félagsins námu 13,6 milljónum evra og jukust um 11% frá fyrra ári. Handbært fé frá rekstri var 5,3 milljónir evra.

Farice er fyrirtæki á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasambanda við útlönd. Fyrirtækið rekur tvo sæstrengi á milli Íslands og Evrópu og kaupir framhaldssambönd á landi og býr þannig til samskiptakerfi fyrir Ísland sem tengist öðrum samskiptakerfum í helstu tengistöðvum í Evrópu.

„Eins og á síðasta ári gekk kerfisrekstur félagsins vel og ekkert rof varð á sambandi Íslands við umheiminn. Endabúnaður sæstrengja félagsins var endurnýjaður á síðasta ári sem margfaldar flutningsgetu kerfisins og félagið því vel í stakk búið til að mæta þörf fyrir aukna bandvídd gagnavera og almennra notenda,“ segir í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar.