Mikil fjölgun fasteigna á söluskrám á síðasta ári, en þá voru 24 þúsund fasteignir settar á sölu á öllu landinu sem er 47% aukning frá árinu á undan. Meðalsölutími utan höfuðborgarsvæðisins styttist verulega eða úr 270 dögum árið 2015 í 100 daga árið 2018.

Leiguverð hækkaði svo meira en íbúðaverð og laun á síðasta ári, en um 7.000 íbúðir eru í byggingu hér á landi samkvæmt nýjustu upplýsingum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs .

Nærri helmingsaukning milli ára

Árið 2018 voru rúmlega 24 þúsund fasteignir auglýstar til sölu á  öllu landinu sem er 47% aukning frá árinu á undan, þegar rúmlega 16 þúsund fasteignir komu nýjar inn á fasteignasöluvefi landsins. Það er því ljóst að framboð fasteigna jókst mikið á nýliðnu ári, á sama tíma og sölutími hélst nokkurn veginn óbreyttur.

Meðalsölutími styttist utan höfuðborgarsvæðisins

Utan höfuðborgarsvæðisins fór meðalsölutími fasteigna lækkandi á nýliðnu ári líkt og þróunin hefur verið allt frá árinu 2015, bæði í sérbýli og fjölbýli. Til að mynda var tíminn sem það tók að selja íbúð í fjölbýli utan höfuðborgarsvæðisins um 100 dagar árið 2018 samanborið við um 270 daga árið 2015. Sölutími á höfuðborgarsvæðinu breyttist lítið frá fyrra ári.

Leiguverð hækkaði meira en íbúðaverð og laun

Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði meira en íbúðaverð á milli áranna 2017 og 2018 samkvæmt þinglýstum leigu- og kaupsamningum sem liggja til grundvallar vísitölum sem Þjóðskrá gefur út.

Leiguverð hækkaði um 8,3% milli ára á sama tíma og íbúðaverð hækkaði um 6,2% á höfuðborgarsvæðinu. Hagstofa Íslands tekur saman gögn um launaþróun á landsvísu og má sjá að hækkun launa milli ára er áþekk hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu eða 6,5%

Íbúðir í byggingu á landinu öllu

Um 7.000 íbúðir eru þessa dagana í byggingu hér á landi samkvæmt nýjustu upplýsingum. Af þessum 7.000 íbúðum eru ríflega 5.000 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu.

Næst á eftir höfuðborgarsvæðinu eru flestar íbúðir í byggingu á Suðurnesjum eða um 634 talsins. Hlutfallslega flestar íbúðir eru í byggingu á suðvesturhorninu og fæstar á Vestfjörðum.

1,5 milljarður fóru í 267 íbúðir fyrir sértæka félagshópa

Alls var 1,5 milljörðum króna úthlutað úr ríkissjóði til fjármögnunar 267 leiguíbúðum fyrir tekju- og eignaminni leigjendur eða aðra félagshópa í síðari úthlutun ársins 2018. Alls hefur stofnframlögum verið úthlutað sex sinnum frá 2016 til 2018, samtals um 9 milljörðum króna til uppbyggingar eða kaup á tæplega 1.700 íbúðum.

Markmið með veitingu stofnframlaga er að bæta húsnæðisöryggi efnaminni fjölskyldna og einstaklinga með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi íbúðarhúsnæði til leigu að því er fram kemur í fréttatilkynningu Íbúðalánasjóðs sem heldur utan um stofnframlögin.