Erlend greiðslukortavelta nam 14,5 milljörðum króna í apríl síðastliðnum, samanborið við rúmlega níu milljarða í sama mánuði 2015. Samkvæmt því er um að ræða 56% aukningu á milli ára en velta á hvern erlendan ferðamann var að sama skapi 20% meiri en í apríl í fyrra. Þetta kemur fram í samantekt Rannsóknarseturs verlunarinnar.

Hótel og veitingahús njóta góðs af þessari auknu veltu. Erlend kortavelta fyrir gistingu í apríl nam rúmum 2,5 milljörðum króna, sem er 53% hærri upphæð en í apríl í fyrra. Þá greiddu erlendir ferðamenn með kortum sínum fyrir veitingar 1,4 milljarð kr. sem er 53% hærri upphæð en í apríl í fyrra.

Aukning í öllum útgjaldaliðum

Samkvæmt úttektinni var aukning í erlendri kortaveltu í öllum útgjaldaliðum á milli ára. Mestur var vöxturinn í flugferðum, um 126% og er þetta sjötti mánuðurinn í röð þar sem greiðslukortavelta vegna flugferða meira en tvöfaldast frá fyrra ári og hefur hún tólffaldast frá 2013.

Ferðamenn hafa það sem af er ári eytt rúmum 12 milljörðum í flugferðir. Hluta af þessari aukningu má rekja til kortaveltu íslensks flugfélags sem selur útlendingum flugferðir til annarra landa, án þess að þessir farþegar komi endilega hingað til lands.

Erlendir ferðamenn greiddu 1,6 milljarð með greiðslukortum sínum í verslun í apríl en það er 38% meira en í apríl í fyrra. Erlend kortavelta gjafa- og minjagripaverslana jókst mest, um 60% milli ára, þá dagvöruverslunar um 57%. Erlend kortavelta fataverslunar jókst minnst á milli ára eða um 16% sem jafngildir 30% samdrætti frá fyrri mánuði.

Erlendir ferðamenn greiddu bílaleigum 1,3 milljarða með kortum sínum í apríl eða 48% meira en í apríl í fyrra. Þá jókst kortavelta ferðamanna í menningar-, afþreyingar- og tómstundastarfsemi í apríl um 72% frá fyrra ári og nam 302 milljónum.