Á opnum félagsfundi Atvinnurekendadeildar Félags kvenna í atvinnulífinu (A-FKA)  sem verður í Iðnó  fimmtudaginn 4. maí n.k. og hefst kl. 16 munu verða kynntar niðurstöður viðhorfskönnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir A-FKA.

Kannaður var bakgrunnur kvenna sem eiga og reka fyrirtæki, staða fyrirtækja þeirra og viðhorf að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Niðurstöður annarrar könnunar stofnunarinnar, sem unnin var árið 1997 fyrir ráðherraskipaða nefnd um atvinnurekstur kvenna, hafa jafnframt verið  bornar saman við niðurstöðurnar nú um 20 árum síðar.

Meðal þess sem samanburðurinn leiðir í ljós er eftirfarandi:

Árið 1997 var konan í atvinnurekstri á aldrinum 35 til 49 ára (49%) með grunnskólapróf (33%). Fyrirtækið var yngra en 5 ára (39%) og starfsmenn færri en 5 (78%).
Árið 2016 var konan í atvinnurekstri 50 ára eða eldri (54%) og með háskólapróf (49%). Fyrirtækið er orðið eldra, einungis 23% yngra en 5 ára. Fyrirtæki með 5 starfsmenn eða færri voru 78% en athygli vekur að fyrirtæki með fleiri en 20 starfsmenn voru 4% en voru einungis 2% árið 1997.
Ein stærsta breyting sem hefur orðið milli áranna 1997 og 2016 lítur að menntunarstigi en eins og áður segir þá voru 49% kvenna í atvinnurekstri með háskólapróf en aðeins 16% árið 1997.

Viðhorf kvenna til atvinnurekstrar og til aðstæðna kvenna í atvinnurekstri hafa líka breyst þó nokkuð en meðal þess sem nýja könnunin leiðir í ljós er að:

  • Tæplega þrjár af hverjum fjórum, eða 72%, telja að menntun þeirra nýtist best með því að fara út í eigin atvinnurekstur.
  • Meirihluti eða 82%, telur það að hafa tækifæri til að vera eigin sinn herra hafi mikið eða nokkuð um það að segja að þær fóru út í eigin atvinnurekstur.
  • 73% þátttakenda segir sveigjanlegan vinnutíma hafa haft mikið eða nokkuð um það sama að segja.
  • Þrjár  af hverjum fimm segja að það að hafa betri aðstæður til að sinna fjölskyldu og börnum hafi haft mikið eða nokkuð með það að segja að þær hófu eigin atvinnurekstur.

Hvað varðar  framtíðarsýn í rekstrinum þá er:

  • Meirihluti eða 63% eru á þeirri skoðun að það sé frekar eða mjög mikilvægt að auka umsvif rekstursins.  Einungis þriðjungur leggur upp úr fjölgun starfsmanna.
  • Mikill meirihluti eða 83% telur mjög eða frekar mikilvægt að auka hagnað fyrirtækisins og fer það hlutfall upp í 91% þeirra sem voru með 100 milljónir eða meira í veltu árið 2015 en 79% þeirra sem voru með veltu undir þeirri tölu.

Tregða kvenna til að veðsetja fasteign fjölskyldunnar fyrir lánum vegna atvinnureksturs er ljós nú sem fyrr en mikill meirihluti svarenda eða 84% telja að konur séu síður tilbúnar til þess en karlar. Hvað varðar aðgang að lánsfé þá telja þrjár af hverum fimm að lánastofnanir séu tregari til að veita konum lán  til atvinnureksturs en körlum.

Frekari niðurstöður verða kynntar á opnum fundi í Iðnó, fimmtudaginn 4. maí kl.16.00 og eru fjölmiðlar velkomnir.