Rúmur helmingur landsmanna, eða 52%, sagðist andvígur innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi en um þriðjungur, eða 31% sagðist hlynntur veggjöldum samkvæmt nýrri könnun MMR .

Jákvæðni gagnvart veggjöldum jókst með auknum aldri en 42% svarenda í elsta aldurshópi kváðust fylgjandi innheimtu veggjalda, samanborið við 36% þeirra á aldrinum 50-67 ára og 27% þeirra undir fimmtugu.

Líklegastir til að segjast fylgjandi veggjöldum eru stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins, eða 49% þeirra, Vinstri-grænna, eða 44%, og Viðreisnar, eða 44%, en stuðningsfólk Miðflokksins reyndust ólíklegust eða 14%..

Þá voru stuðningsfólk Miðflokksins, eða 73% þeirra, Flokks fólksins, eða 61% þeirra og Pírata, eða 59% þeirra líklegust til að segjast andvíg innheimtu veggjalda en 65% stuðningsfólks Miðflokks og 61% stuðningsfólks Flokks fólksins kváðust mjög andvíg.

Afstaðan mikið breyst

Þegar litið er til breytinga niðurstaðna frá fyrri könnunum má sjá hvernig afstaða fólks til veggjalda hefur breyst eftir flokkslínum eftir því sem liðið hefur á umræðuna.

Má í því sambandi nefna að í janúar 2011, þegar Vinstri græn og Samfylking sátu í ríkisstjórn, mældist mest andstaða meðal sjálfstæðismanna þegar spurt var hvort að nýta ætti veggjöld til að standa undir nýframkvæmdum í samgöngumálum og sögðust ekki nema 11% sjálfstæðisfólks fylgjandi veggjöldum.

Í maí 2017 sögðust hins vegar 32% sjálfstæðismanna vera hlynnt því að veggjöld stæðu undir rekstri þjóðvega á Íslandi, í apríl 2018 var hlutfallið komið upp í 45% og í dag mælist það 49%. Könnunin var framkvæmt dagana 18. til 28. janúar meðal 1.024 einstaklinga 18 ára og eldri sem voru valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.