Hækkun húsnæðisverðs hefur öðru fremur knúið verðbólguna áfram undanfarin ár segir í nýjum leiðara Samtaka atvinnulífsins. Þar er bent á að vísitala neysluverðs hækkaði um 21% frá janúar 2003 til júní 2007 en um einungis 11% þegar hækkun húsnæðisverðs er undanskilin. Á þessum fjórum og hálfa ári hefur verðbólgan verið 4,4% á ári að jafnaði en 2,4% ef hækkun húsnæðisverðs er undanskilin.

Hækkun húsnæðisverðs var 84% á tímabilinu en það nemur 15% á ári að jafnaði.

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir afar brýnt að stjórnvöld grípi til ráðstafana sem stuðlað geti að jafnvægi á fasteignamarkaði. ?Ákvörðun félagsmálaráðherra þann 3. júlí sl. um lækkun lánshlutfalls á ný í 80% er gott skref í þá átt og mun skila árangri. Þróun fasteignamarkaðarins verður þó aldrei eðlileg fyrr en umsvif Íbúðalánasjóðs verða takmörkuð verulega og starfsemi hans afmörkuð við félagslegt hlutverk, en bönkum og sparisjóðum verði látið eftir að sinna almennum íbúðalánum," segir Hannes í fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins.