Greiningardeild Arion banka telur Seðlabanka Íslands vera að endurtaka sömu mistök og í fyrra. Þá fékk krónan að styrkjast mikið en um haustið veiktist hún aftur. Í markaðspunktum greiningardeildarinnar er tekið fram að heppilegt væri ef bankinn myndi leggjast gegn styrkingu krónunnar með því að hefja gjaldeyriskaup a nýjan leik.

VB Sjónvarp ræddi við Hafstein Hauksson hjá greiningardeild Arion banka.