Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í dag hafnaði dómurinn kröfu Mjólkursamsölunnar (MS) um að vísað yrði frá dómi máli sem Samkeppniseftirlitið hefur höfðað til þess að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu taki að fullu til MS og hvort brot hafi átt sér stað. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að eftirlitið hafi talið að mikilvægt væri fyrir hagsmuni smærri framleiðenda, bænda og neytenda að fá úr þessu skorið. Úrskurðurinn felur í sér að málið fær nú efnismeðferð fyrir héraðsdómi.

Forsaga málsins er sú að í júlí 2016 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að MS hefði með alvarlegum hætti brotið gegn banni 11. gr. samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Nánar tiltekið hefði MS misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að selja smáum keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum, þ.e. hrámjólk, á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfélag þess) fengu sama hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Jafnframt hefði MS brotið gegn skyldu samkeppnislaga til þess að veita sannar og fullnægjandi upplýsingar. Lagði Samkeppniseftirlitið á MS 440 mkr. sekt vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og 40 mkr. sekt vegna brota á upplýsingaskyldu.

MS skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp sinn úrskurð 21. nóvember 2016. Meirihluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu að undanþáguákvæði búvörulaga hefðu vikið banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu til hliðar. Af þessu leiddi að sekt MS vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga var felld úr gildi. Á hinn bóginn staðfesti nefndin að MS hefði framið alvarlegt brot á upplýsingaskyldu samkeppnislaga og að fyrirtækinu bæri að greiða 40 mkr. sekt vegna þess.

Eftir skoðun á forsendum úrskurðar meirihluta áfrýjunarnefndar stefndi Samkeppniseftirlitið Mjólkursamsölunni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Miðar sú málshöfðun að því að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu taki að fullu til MS. Jafnframt verði fengin fullnaðarúrlausn um hvort fyrirtækið skuli sæta fullri ábyrgð vegna þeirrar háttsemi sem fjallað er um í málinu og Samkeppniseftirlitið hefur metið sem alvarleg brot gegn minni keppinautum. Samkeppniseftirlitið krefst þess að MS greiði þá stjórnvaldssekt sem eftirlitið taldi hæfilega í ákvörðun sinni frá júlí 2016.

MS krafðist þess að máli Samkeppniseftirlitsins yrði vísað í heild sinni frá dómi. Telur MS m.a. að Samkeppniseftirlitið hafi ekki heimild til þess að láta á það reyna fyrir dómstólum hvort meirihluti áfrýjunarnefndar samkeppnismála hafi túlkað undanþáguákvæði búvörulaga með réttum hætti. Jafnframt telur MS að Samkeppniseftirlitinu sé ekki stætt að því að fara fram á að dómstólar kveði á um þá sekt sem MS beri að greiða vegna brota á samkeppnislögum.

Málflutningur um frávísunarkröfu MS fór fram í morgun og kvað dómari upp úrskurð sinn í kjölfar hans. Var kröfu MS um frávísun málsins hafnað.