Bjarki H. Diego, fyrrverandi framkvæmdarstjóri lögfræðisviðs Kaupþings, þarf að greiða tekjuskatt vegna kaupréttarsamninga sem hann gerði við bankann samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Samkvæmt dómnum skal Bjarki greiða tekjuskatt af kaupréttarsamningunum. Alls nemur upphæðin 155.583.679 krónum.