Héraðsdómur Reykjavíkur mun tilkynna fyrir hádegi í dag hvort að ákærum í Baugsmálinu verði vísað frá.

Dómari í málinu, Pétur Guðgeirsson, sagði í nýlegu bréfi að það kunni að vera ?annmarkar" á 18 af 40 ákærum í Baugsmálinu.

Í frétt Ríkisútvarpsins í morgun segir að þrennskonar niðurstaða komi til greina. ?Að ákærunni verði vísað frá að hluta, í heild sinni eða hún standi óbreytt. Úrskurðurinn verður væntanlega kærður til Hæstaréttar hver sem niðurstaðan verður."