Öllum sem koma til landsins frá og með 19. febrúar næstkomandi verður skylt að framvísa nýlegu vottorði um neikvæða niðurstöðu úr PCR-prófi fyrir brottför á leið til Íslands og á landamærum við komuna. Kemur sú ráðstöfun til viðbótar kröfu um tvöfalda skimun.

Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að frá sama tíma verði þeim sem greinast með COVID-19 við skimun á landamærum skylt að dvelja í sóttvarnahúsi ef önnur viðunandi aðstaða til einangrunar er ekki fyrir hendi, eða ef einstaklingur er með afbrigði veirunnar sem eru þekkt fyrir að vera meira smitandi en önnur eða valda alvarlegri veikindum.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, kynnti ákvörðun þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í dag og er hún í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir á landamærum.

Sóttvarnarlæknir vill ekki undanþágu fyrir bólusetta

Í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra leggur hann einnig til að horfið verði frá því að veita þeim undanþágu frá sóttvarnaráðstöfunum á landamærum sem framvísa gildu vottorði um að þeir hafi verið bólusettir gegn COVID-19. Heilbrigðisráðherra fellst ekki á þessa tillögu sóttvarnalæknis að svo stöddu og telur hana þarfnast nánari skoðunar.

Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um framvísun bólusetningarvottorða á landamærum og kröfur sem gerðar eru til þeirra svo gild teljist tók gildi 15. janúar síðastliðinn. Síðan þá hafa 57 einstaklingar framvísað bólusetningarvottorðum og af þeim vottorðum hefur 9 verið hafnað. Hertar aðgerðir forsenda tilslakana innanlands

Herða ráðstafanir í þágu tilslakana innanlands

Fram kemur í tilkynningunni að ráðherra taki undir með sóttvarnalækni að staða faraldursins innanlands gefi tilefni til að slaka frekar á takmörkunum innanlands. Það bjóði hins vegar þeirri hættu heim að ef smit leki frá landamærum geti ný bylgja faraldursins farið hratt af stað ef litlar takmarkanir verði á samkomum fólks innanlands.

Vegna þessa sé það mat ráðuneytisins að rétt sé að bregðast við tillögum sóttvarnalæknis og grípa til tiltekinna ráðstafana á landamærum, til viðbótar þeim sem eru nú þegar í gildi, til að draga eins og unnt er úr hættunni á því að smit berist gegnum landamærin og inn í samfélagið.