Herra Bean verður brátt næstráðandi í Seðlabanka Englands, Bank of England.

Ekki er þó um að ræða hina grínaktugu persónu sem leikarinn og verkfræðingurinn Rowan Atkinson hóf til frægðar, heldur Charlie Bean, sem nú gegnir starfi yfirhagfræðings bankans.

Sigur fyrir yfirmanninn

Bean leysir Rachel Lomax af hólmi og segir The Times að væntanleg skipan hans sé mikið fagnaðarefni fyrir æðsta mann  bankans, Mervyn King, þar eð Bean er honum mjög nákominn.

Áður hafði Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, gefið í skyn að hann myndi skipa fjármálasérfræðing í stöðuna, í kjölfar hinna miklu erfiðleika sem Northern Rock-bankinn þurfti að þola fyrr í vetur, en nú er ljóst að hagfræðingur verður fyrir valinu.

Reiknað er með að tilkynnt verði um skipan Bean’s í næstu viku.