Hersir Sigurgeirsson, forstjóri MP banka, 24703
Hersir Sigurgeirsson, forstjóri MP banka, 24703
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Hersir Sigurgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Straums sjóða, dótturfélags Straums fjárfestingabanka, en greint er frá þessu í DV .

Hersir, sem er dósent í fjármálum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, tekur við starfinu af Sigþóri Jónssyni sem orðinn er framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa.

Hersir hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri áhættustýringar og forstjóri fjárfestingabankans Saga Capital. Hann er með doktorsgráðu í stærðfræði frá Stanford í Bandaríkjunum.