Hertogahjónin af Cambridge, þau Vilhjálmur prins og Kate Middleton, lentu á Nýja Sjálandi í morgun en þau eru í þriggja vikna heimsókn þar og í Ástralíu. Þetta er í fyrsta sinn sem Georg, sonur þeirra, fer með þeim í opinbera heimsókn. Georg er einungis átta mánaða gamall.

Örlítið babb kom í bátinn þegar fjölmiðlar á Nýja Sjálandi komust að því að foreldrar Georgs litla séu framhlið barnabílstólsins snúa fram. Slíkt er ekki samkvæmt öryggisráðstöfunum því stóllinn á að snúa aftur svo fyllsta öryggis sé gætt.