Undirritaður hefur verið samningur milli Toyota í Kópavogi og Bílaleigunnar Hertz um kaup á 298 nýjum Toyota bifreiðum. Þetta eru 190 Yaris, Corolla, Auris og Avensis fólksbílar, 55 Rav4 jepplingar, 50 Land Cruiser jeppar og þrjár Hiace sendibifreiðar. Bílarnir verða afhentir í vor og verða tilbúnir til útleigu þegar sumarið gengur í garð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hertz og Toyota.
Sigfús B. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hertz, segir í tilkynningunni að starfsmenn bílaleigunnar séu mjög bjartsýnir á komandi ferðatímabil. „Bókanir fyrir sumarið líta vel út en þó ber að hafa í huga að aðalbókanatímabilið er ekki enn hafið. Hertz gerir kröfur um að bílarnir sem leigðir eru út séu ekki eldri en tveggja ára og þannig geta viðskiptavinir okkar verið vissir um að fá nýja og örugga bíla. Um 85% viðskiptanna koma erlendis frá og starfsemin skilar því miklum gjaldeyristekjum" segir Sigfús.
„Við hjá Toyota erum mjög ánægð með að jafn öflugur og stór aðili og Hertz skuli sýna okkur það traust sem þessi samningur er vitni um. Samstarf Hertz og Toyota hefur staðið um langt árabil enda erum við með fjölbreytta línu af bifreiðum sem þjónað geta ólíkum þörfum viðskiptavina“ segir Haraldur Þ. Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota í Kópavogi, í tilkynningunni.
Meðfylgjandi Mynd var tekin er samningur milli Toyota í Kópavogi og Bílaleigunnar Hertz um kaup á 298 bilum var undirritaður. Frá vinstri eru Hlynur Ólafsson, viðskiptastjóri hjá Toyota Kópavogi, Sigfús B. Sigfússon, framkvæmdastjóri Hertz, Haraldur Þ. Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota Kópavogi, Sigurður Berndsen, fjármálastjóri Hertz, Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, Kristján Þorbergsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Toyota á Íslandi og Hendrik Berndsen, stjórnarformaður Hertz.