Dollar Thrifty bílaleigan hefur samþykkt tilboð Hertz sem hljóðar upp á 1,4 milljarða dala.  Hertz og Avis hafa barist um Dollar Thrifty um nokkurt skeið.

Hertz bauð í apríl 41 dali á hlut.  Tilboðið nú hljóðar upp á 50 dali á hlut og var samþykkt í gær af stjórn Dollar Thrifty.