Bílaleigan Hertz hefur opnað nýtt umboð á Sauðárkróki í samstarfi við Kaupfélag Skagfirðinga. Þetta mun liður í þeim áformum bílaleigunnar að efla þjónustunetið á landsvísu.
Fram kemur í tilkynningu frá Hertz, að umboðið er staðsett þjónustuverkstæði Kaupfélagsins í Kjarnanum og þar mun bílaleigan þjónusta m.a. fyrirtæki, einstaklinga, verkstæði og tryggingarfélög.
Bílaleiga Hertz rekur nú 11 starfstöðvar víðsvegar um landið.