Skiptum lauk þann 17. ágúst sl. á fyrirtækinu Hestar og menn ehf., sem tekið var til gjaldþrotaskipta 3. desember 2009. Fyrirtækið rak verslun með vörur fyrir hestamenn í Ögurhvarfi í Kópavogi. Lýstar kröfur í búið námu rúmum 125,5 milljónum króna, en engar eignir fundust í búinu.