Eignarhaldsfélagið Hesteyri hefur selt í Exista fyrir 4,8 milljarðar króna og minnkar þar með eignarhlut hlut sinn í félaginu í 3,82% úr 5,73%, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða 207.198.260 hluti selda á genginu 23 krónur á hlut.

Eigendur Eignarhaldsfélagsins Hesteyrar eru þrír og eiga þar allir jafnan hlut: Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar, FISK Seafood og Skinney-Þinganes. Kaupfélag Skagfirðinga er eigandi nær alls hlutafjár FISK Seafood.