Það bendir til þess að vertakar muni draga úr framkvæmdum við íbúðabyggingar á næsta ári, samkvæmt upplýsingum Samtaka atvinnulífisins og Samtaka iðnaðarins frá aðilum á byggingarmarkaði.

Samtök atvinnulífsins segja samdráttinn mótsögn við spá Seðlabanka Íslands, sem spáir að eftir metumsvif á þessu ári og 14,9% aukningu frá árinu 2005 vaxi fjárfesting í íbúðarhúsnæði enn um 3,8% á næsta ári.

"Minnkandi eftirspurn er ástæða þess að aðilar á byggingamarkaði hyggjast draga úr framkvæmdum en það kemur í veg fyrir offramboð á íbúðarhúsnæði og dregur úr hættu á verðhruni á fasteignum. Útlit er því fyrir að markaðurinn leiti jafnvægis," segja Samtök atvinnulífsins.

Í viðtölum samtakanna við aðila á byggingamarkaði koma fram sterkar vísbendingar um að byggingamarkaðurinn á Íslandi sé farinn að róast en hann hefur verið yfirspenntur síðustu tvö til þrjú árin.

Samtökin segja að fyrirtæki bregðist nú við minnkandi eftirspurn eftir húsnæði með því að draga úr framkvæmdum á næstu mánuðum.

"Með hliðsjón af miklu framboði á markaðnum hyggjast sum fyrirtæki bíða með byggingu húsa sem þau hafa þegar fengið leyfi fyrir og draga úr framkvæmdahraða," segja Samtök atvinnulífsins.

Samtökin segja það undrunarefni að Seðlabankinn rökstyðji nýjustu hækkun stýrivaxta, frá og með 11. júlí í 13%, meðal annars með því að þensla í íbúðabyggingum haldi áfram og að framkvæmdir verði ennþá meiri árið 2007 en 2006.

"Gengi sú spá bankans eftir yrði hér offramboð á fasteignum og hætta á verðhruni á húsnæði með ófyrirséðum afleiðingum. Viðbrögð aðila á byggingamarkaði sem hyggjast nú hægja á framkvæmdum á næstu mánuðum stuðla hins vegar að jafnvægi á fasteignamarkaði."