Háskóli Íslands er í 500.-600. sæti á nýjum lista samtakanna Shanghai Ranking Consultancy yfir bestu háskóla heims 2021. Þetta er fimmta árið í röð sem Háskólinn kemst á listann og sem fyrr er hann þar einn íslenskra háskóla. HÍ greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

„Shanghai-listinn er vafalítið þekktastur allra lista yfir bestu háskóla heims en hann ber formlega heitið Academic Ranking of World Universities (ARWU). Shanghai-listinn er annar af tveimur virtustu og áhrifamestu matslistunum en hinn er Times Higher Education World University Rankings. Háskóli Íslands hefur verið á þeim lista í áratug.

Shanghai-listinn hefur verið birtur í nærri tvo áratugi og grundvallast á úttekt og samanburði á yfir 2.000 háskólum víða um heim. Þar er horft til mælikvarða eins og birtinga vísindagreina í virtum fræðitímaritum, fjölda tilvitnana annarra vísindamanna í rannsóknir einstakra starfsmanna og á vegum hvers skóla, frammistöðu háskóla út frá starfsmannafjölda og fjölda starfsmanna sem hjóta vísindaverðlaun fyrir framlag sitt innan einstakra fræðagreina,“ segir í fréttatilkynningu.

Á nýjum lista yfir 1.000 fremstu háskóla heims sem Shanghai Ranking Consultancy birti á sunnudaginn var raðast Háskólinn í sæti 500-600 en þar var hann einnig í fyrra.

„Samkeppni háskóla um að komast á Shanghai-listann er gríðarlega hörð. Frábært er að Háskóli Íslands haldi stöðu sinni á listanum, en ljóst er að við þurfum að halda áfram að efla starfið og fjárfesta í háskólamenntun hérlendis," segir Jón Atli Bendiktsson, rektor Háskóla Íslands, í tilkynningu. „Þekkingin er gjaldmiðill framtíðarinnar og við þurfum að sækja fram af miklum þunga. Það að standa í stað þýðir að detta niður listann þar sem aðrir halda áfram að bæta í."