Á öðrum ársfjórðungi var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 1,9 milljarða króna en það er verulega óhagstæðari afkoma en á 2. ársfjórðungi 2007 er hún var jákvæð um 11,8 milljarða króna.

Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuhallinn 0,1% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 1,2%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2008.

Á vef Hagstofunnar kemur fram að fara þarf aftur til þriðja ársfjórðungs 2004 til að finna neikvæða afkomu í rekstri hins opinbera.

Þessi óhagstæða afkoma skýrist af bæði neikvæðri tekjuafkomu ríkissjóðs og sveitarfélaga, en afkoma almannatrygginga var hins vegar jákvæð á umræddum ársfjórðungi.

Tekjur ríkissjóðs hækkuðu um 1,3% á öðrum ársfjórðungi 2008 frá sama ársfjórðungi 2007, en lækkuðu hins vegar um 4,6% frá 1. ársfjórðungi 2008 eða 5,4 milljarða króna og munar þar mestu um lækkun skatttekna af vöru og þjónustu.

Á sama tíma hækkuðu útgjöldin um 13,8% milli ára og um 10,4% milli fyrsta og annars ársfjórðungs 2008. Munar þar miklu um aukna fjárfestingu ríkissjóðs og aukin fjárframlög til almannatrygginga.

Hér má nálgast Hagtíðindi.