Þeim Sharper Image búðum sem eftir eru verður lokað og þær seldar. Verið er að selja vörur að andvirði 50 milljóna Bandaríkjadala í 86 Sharper Image verslunum um öll Bandaríkin.

Hilco keypti eigur Sharper Image í félagi við Gordon Brothers á nauðungarsölu í síðustu viku fyrir 49 milljónir Bandaríkjadala og hyggjast halda áfram heildsölustarfsemi Sharper Image.

Hilco og Gordon Brothers hafa þegar tekið 96 af verslunum Sharper Image til gjaldþrotaskipta.