Heilbrigðisráðherra hefur skipað Hildigunni Svavarsdóttur í starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) til fimm ára. Embættið var auglýst í þann 25. júní síðastliðinn og var Hildigunnur valinn af ráðherra úr hópi sjö umsækjanda í framhaldi af álitsgerðar hæfnisnefndar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Hildigunnur hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á SAk frá árinu 2012 ásamt því að vera klínískur framkvæmdastjóri á bráða- og þróunarsviði frá sama ári. Hún var forstöðumaður deildar kennslu, vísinda og gæða á SAk um tíu ára skeið, sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður tók Hildigunnur mjög virkan þátt í uppbyggingu gæðastarfs sem síðan leiddi til alþjóðlegrar gæðavottunar á SAk. Þá hefur hún verið virk í stefnumótun bæði innan hjúkrunar og fyrir SAk í heild sinni.

Hún var skólastjóri Sjúkraflutningaskólans um í tíu ár og átti ríkan þátt í því að nám sjúkraflutningamanna fluttist á landsbyggðina. Hildigunnur var formaður Landssambands heilbrigðisstofnana í þrjú ár.

Þá hefur Hildigunnar mikla reynslu af kennslu og vísindum en hún starfaði sem lektor við Háskólann á Akureyri (HA) í fimmtán ár og er nú með stöðu klínísks lektors við heilbrigðisvísindastofnun HA. Hildigunnur hefur verið virk í vísindastarfi og er meðhöfundur á greinum í erlendum tímaritum.

Einnig hefur hún reynslu af alþjóðastarfi, má þar nefna verkefnastjórn á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins. Hún hefur setið í stjórn Endurlífgunarráðs Evrópu í 15 ár  og í framkvæmdastjórn ráðsins í fimm ár. Þá var hún í forsvari fyrir hóp leiðbeinenda sem fór á vegum Rauða kross Íslands þrisvar sinnum til Palestínu til að byggja upp þekkingu og þjálfun í endurlífgun í samstarfi við palestínska Rauða Hálfmánann.

Hildigunnur hefur BS próf í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og MS próf í heilbrigðisvísindum frá Glasgow Caledonian háskóla. Þá hefur hún lagt stund á nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.