Hildur Betty Kristjánsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) frá 1. febrúar nk. Þetta kemur fram í tilkynningu. Hún tekur við starfinu af Sigríði Guðmundsdóttur, sem hefur nýlega verið ráðin nýr mannauðsstjóri Landsbankans.

Hildur Betty hefur starfað við menntamál í 25 ár og þar af í 15 ár á sviði fullorðinsfræðslu. Hún leggur nú stund á doktorsnám við menntavísindasvið Háskóla Íslands með áherslu á nám fullorðinna. Hildur Betty hefur lokið meistaranámi í stjórnun menntastofnana frá Háskólanum á Akureyri og grunnskólakennaranámi frá Kennaraháskóla Íslands. Í dag starfar Hildur Betty sem aðjúnkt við Háskóla Íslands samhliða doktorsnámi sínu. Áður starfaði hún meðal annars hjá Ásgarði, skóla í skýjunum, FA og hjá SÍMEY á Akureyri.

Hildur Betty, nýr framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA):

„Ég er full tilhlökkunar að hefja störf hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og starfa með öflugu starfsfólki og stjórn að þeim fjölmörgu sóknarfærum sem til staðar eru á sviði fullorðinsfræðslu."

Ingibjörg Ösp, stjórnarformaður FA fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins:

„Það eru mikil verðmæti í því að fá Hildi Betty til liðs við okkur. Við okkur blasa krefjandi áskoranir enda miklar breytingar fyrirsjáanlegar á vinnumarkaði hvað varðar þróun starfa og framboð. Lög um málaflokkinn þarf að endurskoða og í framhaldinu þarf að aðlaga og þróa starfsemina til að mæta nýjum áskorunum. Hildur Betty verður öflugur talsmaður og leiðtogi og við væntum mikils af henni og þeim góða hópi starfsfólks sem fyrir er í FA. Um leið þökkum við Sigríði Guðmundsdóttur fyrir hennar ómetanlega starf í þágu FA.“