Hildur Sverrisdóttir
Hildur Sverrisdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Staða lögfræðings 365 miðla hefur verið lögð niður, en Hildur Sverrisdóttir hefur gegnt henni hingað til. Hildur segir í samtali við Viðskiptablaðið að þetta sé partur af víðtækum hagræðingaraðgerðum hjá fyrirtækinu, en hún mun áfram sinna verkefnum fyrir 365 miðla eftir að hún lætur af störfum, auk þess sem hún mun taka að sér önnur verkefni.