Hillary Clinton hefur tekið boði Barack Obama um að verða utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Hillary gefur því eftir sæti sitt sem öldungardeildarþingmaður og verður andlit utanríkisstefnu Bandaríkjanna, eins og fjölmiðlar vestanhafs hafa sagt.

Obama er nú óðum að fylla upp í stöður embættismanna í stjórn sinni en í dag tilkynnti hann um val sitt á Timothy Geitner sem fjármálaráðherra.