Hillary Clinton ætlar að gefa út bók undir nafninu Erfiðir valkostir (e. Hard Choices) þar sem hún fjallar um áskoranir og verkefni sem hún hefur þurft að glíma við sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Bókin sem á að koma út 10. júní kemur á sama tíma og Clinton er orðuð við að vera næsti forsetaframbjóðandi Demókrata í kosningunum 2016. Það er forlagið Simon & Schuster sem gefur út bókina.