Hilmar B. Janusson hefur tekið sæti í stjórn lækningavörufyrirtækisins Kerecis.
Hilmar hefur verið forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands síðan árið 2012.
Áður var hann framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknarstarfs hjá Össuri í 20 ár, eða frá árinu 1992.
Hann hefur jafnframt setið í háskólaráði Háskóla Íslands og í vísinda- og tækniráði Íslands.