Landsnet hefur ráðið Hilmar Karlsson í starf forstöðumanns upplýsingatækni þar sem hann mun stýra  uppbyggingu og þróun á upplýsingakerfum Landsnets. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Hilmar er menntaður rafmagnsverkfræðingur frá Hí og hefur starfað við upplýsingatækni og stjórnun í yfir tuttugu ár nú síðast sem forstöðumaður hugbúnaðarþróunar hjá Arion banka.

„Það er spennandi að vera orðinn hluti af því neti sem Landsnet er og fá tækifæri til að taka þátt í þeim fjölmörgu verkefnum er þar eru. Hjá Landsneti ríkir metnaður og vilji til að gera vel og ég er fullur tilhlökkunar að leggja mitt að mörkum til að gera gott fyrirtæki enn betra.“ segir Hilmar.