Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, fjallar um sögu þess og vöxt í þriðja erindi fyrirlestraraðarinnar Fyrirtæki verður til í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, í dag, 13. febrúar kl. 12.

CCP var stofnað árið 1997 og er þekktast fyrir fjölspilaraleikinn EVE Online sem hóf göngu sína árið 2003. Leikurinn er sá eini sinnar tegundar sem vaxið hefur árlega í fjölda áskifenda en þeir eru í dag yfir 450.000. Fyrirtækið hefur nú opnað fyrir almennan aðgang að skotleiknum Dust 514 og stefnir á formlega útgáfu hans innan tíðar.

Nú starfa rúmlega 500 manns hjá fyrirtækinu, þar af um 300 í höfuðstöðvunum á Íslandi. Auk þess hefur fyrirtækið starfsstöðvar í Atlanta, Newcastle, San Fransisco og Shanghai. CCP hefur unnið til margvíslegra alþjóðlegra verðlauna fyrir EVE Online og þá hefur félagið einnig hlotið ýmsar viðurkenningar innanlands, þar á meðal Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs Íslands og Útflutningsverðlaun forseta Íslands.

Í fyrirlestrinum, sem ber titilinn Veruleiki sýndarveruleikans, mun Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, fara yfir sögu fyrirtækisins í máli og myndum og jafnframt horfa til framtíðar. Hilmar hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2000 og tók við sem forstjóri þess árið 2004.