Eigendum ríflega ⅔ hluta af Pressunni voru ekki kynnt kaup Sigurðar G. Guðjónssonar, hæstaréttarlögmanns og eiganda Frjálsar verslunar á öllum helstu eignum félagsins fyrr en þau voru um garð gengin.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í morgun keypti Sigurður út úr félaginu dagblaðið DV, og vefsíðurnar Eyjuna og Vefpressuna, með yfirtöku á 400 milljón króna skuld félagsins og bjargaði því þannig frá gjaldþrotaskiptum sem hefðu hafist ellegar í dag.

Eigendur Dalsins, þeir Árni Harðarson, Halldór Kristmannsson, Hilmar Þór Kristinsson, Jóhann G. Jóhannsson og Róbert Wessmann segjast mjög forvitnir að vita hvaða fjárfestar standi að baki Sigurði að því er fram kemur á Vísi .

„Dalurinn er áfram eigandi að 68% hlut í Pressunni og ekki er ákveðið hvað verður um þann eignarhlut. En í ljósi umræddra viðskipta má telja að sá hlutur hafi lítið verðmæti þar sem eignir hafa verið seldar úr félaginu,“ segir í tilkynningu frá Dalnum sem á 68% í félaginu.

„Kaupsamningur Frjálsrar Fjölmiðlunar um kaup á nánast öllum eignum Pressunnar og tengdum félögum var kynntur fyrir eigendum Dalsins eftir að hann var frágenginn. Ef marka má yfirlýsingar kaupanda þá verða allar skuldir félagsins gerðar upp og þá sérstaklega skuldir við tollstjóra og lífeyrisskuldbindingar starfsmanna. Við fögnum því ef þetta verður niðurstaðan.“

Andvökunætur að baki

Björn Ingi Hrafnsson útgefandi og Arnar Ægisson framkvæmdastjóri Pressunnar eiga um þriðjungshlut í félaginu, en Björn Ingi óskaði starfsmönnum félagsins til hamingju með málalyktirnar með tölvupósti í morgun.

„Vinnan í dag verður með hefðbundnu sniði og á næstu dögum verður greint frá helstu breytingum sem hið nýja samkomulag hefur í för með sér,“ sagði Björn Ingi. „Á persónulegum nótum vil ég segja að, að baki er gríðarleg vinna og andvökunætur. Að ljúka þessu með farsælum hætti er gríðarlegur léttir og umfang þessara viðskipta sýnir hve mikilvægir fjölmiðlarnir eru og hve möguleikar þeirra eru miklir til framtíðar.“

Sagði hann að allir innan félagsins geti verið stoltir. „Að baki er langvinn varnarbarátta við erfiðar aðstæður. Þar hafa starfsmenn engu að síður unnið afrek á hverjum degi. Nú verður því spennandi að sjá ykkur skipuleggja sóknina við allt aðrar og betri aðstæður.“