Hitaveita Rangæinga hagnaðist um 51,1 milljón árið 2006, samanborið við 38,8 milljóna króna tap árið 2005, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Rekstrartekjur árið 2006 námu 104,4 milljónum króna en voru 83,4 milljónir árið áður.

Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, var 62,7 milljónir króna samanborið við 33,5 milljónir króna árið 2005

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 63,0 milljónir króna árið 2006. Árið 2005 voru fjármagnsliðir neikvæðir um 47,1 milljón króna.

Heildareignir 31.12.2006 voru 768,6 milljónir króna en voru 666,1 milljónir króna 31.12.2005.

Eigið fé 31.12.2006 var 178,2 milljónir króna en var 127,1 milljón króna 31.12.2005.

Heildarskuldir 31.12.2006 voru 590,4 milljónir króna en voru 539,0 milljónir 31.12.2005.

Eiginfjárhlutfall var 23,18% í lok árs 2006 en var 19,08% í lok ársins 2005