Það er farið að hitna í kolunum í geimkapphlaupi milljarðamæringanna en Richard Branson, stofnandi Virgin samsteypunnar, ætlar að skjóta Jeff Bezos ref fyrir rass og verða fyrsti geimflaugafrumkvöðullinn til að fara út í geim. Washington post greinir frá.
Upphaflega ætlaði Branson að vera um borð í seinna geimflugi en nú stefnir allt í að hann verði um borð í geimflugi Virgin Galactic, sem Branson á fjórðungshlut í, sem áætlað er að verði 11. júlí næstkomandi. Fyrirhuguð geimferð Jeff Bezos er níu dögum síðar, þann 20. júlí.
Branson segist vera spenntur fyrir ferðinni en jafnframt að hann ekki ætlað að sigra Bezos og að tímasetningin sé eingöngu ótrúleg tilviljun. Geimflaug Virgin Galactic, SpaceShipTwo Unity, hefur þrisvar sinnum áður farið út í geim en þetta verður í fyrsta sinn sem að fjórir áhafnarmeðlimir verða um borð.
Ásamt Branson verða þrír starfsmenn Virgin Galactic sem munu meta gæði, upplifun og öryggi geimflugsins. Meðal þeirra er Beth Moses, yfirgeimfaraþjálfari félagsins, en hún var um borð í öðru geimflugi fyrirtækisins.