Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, og Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, munu halda saman til fundar við Bjarna Benediktsson, formanns Sjálfstæðisflokksins síðdegis í dag. Þetta kemur fram í frétt Vísis .

Óttarr segir í samtali við Vísi, að flokkarnir munu ganga samsíða í stjórnarmyndunarviðræðum. Þeir vilja að rödd frjálslyndrar miðju heyrist vel. Þeir segja einnig að samlegð sé á milli flokkanna að miklu leyti.