Samskip kynna þjónustu sína og nýjan vef á sjávarútvegssýningunni. Gísli Þór Arnarson hjá Samkipum segir umfang fyrirtækisins í tengslum við sjávarútveg vera mjög mikið. Fisknum sé dreift innanlands og einnig fluttur út til Evrópu. Mikilvægt sé að fá fólk á sýningu sem þessa og hitta aðra úr atvinnugreininni.