Kona sem franska tímaritið Closer sagði á dögunum vera hjákonu Francois Hollande Frakklandsforseta hefur höfðað mál á hendur blaðinu. Hún segir umfjöllun blaðsins árás á einkalíf sitt.

AP-fréttastofan segir konuna, sem heitir Julie Gayet og er leikkona, krefjast 54 þúsund evra, jafnvirði tæpra 8,5 milljóna króna, í bætur og útlagðan kostnað vegna málsins. Þá krefst hún þess að blaðið fjalli um málið þegar það fer fyrir dómstóla á forsíðu blaðsins.

Fréttastofan segir Hollande ekki vilja tjá sig um það hvort hann ætli líka í mál við blaðið.